NorðurlöndinNorðurlöndin
Í þessum söguramma glíma nemendur við Norðurlöndin. Unnin eru ýmis verkefni, bæði einstaklingsverkefni og hópverkefni. Upplýsingatækniverkefnið sem hér er lagt upp snýst um ritun og upplýsingaleit á netinu. Nemendur vinna einstaklingsverkefni í ritvinnsluforriti. Hugbúnaður Hægt er að nýta ýmis forrit i upplýsingatækniverkefnið en hér verður unnið í Microsoft Word. Í þessu verkefni þjálfast nemendur í formlegri uppsetningu á ritgerð, skráningu heimilda, uppsetningu á töflu og heimildaleit á neti. Á síðunni Fyrir nemendur eru nánari leiðbeiningar. |