Náttúrufyrirbæri á ÍslandiSögurammi um náttúrufyrirbæri á borð við eldfjöll, eyjar, jökla, ár, vötn, fossa og hveri
Nemendur fjalla um ýmis náttúrufyrirbrigði á Íslandi; eldfjöll, eyjar, jökla, ár, vötn, fossa og hveri. Nemendur vinna ýmist einir eða í hópum og útbúa meðal annars veggspjöld, teikningar og samantektir. Upplýsingabæklingur Verkefnið í upplýsingatækni og miðlun er einstaklingsverkefni og miðað við að hver nemandi búi til einn upplýsingabækling. Hægt er að setja upp (brjóta um) bæklinga í ýmsum forritum en í þessu verkefni er gert ráð fyrir umbroti í Publisher. Á síðunni Fyrir nemendur eru vinnulýsing fyrir nemendur ásamt kennslumyndum um Publisher. Að ýmsu að hyggja við umbrot Áður en byrjað er á umbrotsvinnunni er gott að fara yfir nokkur atriði sem hafa ber í huga við gerð bæklinga. Neðst á síðunni Fyrir nemendur og einnig hér að neðan er upptaka þar sem flutt er örstutt skjákynning um þetta efni. Hér má líka nálgast skjákynninguna sjálfa og nota að vild. |
|