EvrópaSögurammi um höfuðborgir í Evrópu
Í þessum söguramma er athyglinni beint að Evrópu. Nemendur kynna sér höfuðborgir í Evrópu utan Norðurlandanna. Áhersla er lögð á staðsetningu, merka staði og sérstöðu hverrar borgar. Nemendur búa til kort af Evrópu og merkja inn á það höfðuborgir landanna í álfunni. Ferðaáætlun og kostnaður í töflureikninum Excel Upplýsingatækniverkefnið í þessum söguramma er einstaklings- eða paraverkefni og eiga nemendur að skipuleggja ferðalag um Evrópu, setja áætlunina upp í ritvinnsluforriti, gera um ferðalagið kostnaðaráætlun og setja hana upp í töflureikni. Hægt er að setja upp áætlun og kostnaðaráætlun í ýmsum forritum en hér er gert ráð fyrir nemendur noti ritvinnsluforritið Word og töflureikninn Excel. |