Landnámið - Leiðbeiningar fyrir nemendur
Hikmyndagerð í HUE Animation
Þetta er hópverkefni fyrir þrjá til fimm nemendur. Áður en byrjað er á verkefninu er gott að vera eina kennslustund í tölvustofu eða við nettengda tölvu og prófa forritið sem nota á í hikmyndagerðina.
Verkefnalýsing fyrir hikmyndagerð um landnámið Hikmyndir eru einnig nefndar hreyfimyndir. ATHUGIÐ! Þegar unnið er í HUE Animation má alls ekki nota íslenska stafi þegar skjölum er gefið nafn og þau vistuð. Búið til söguborð Ræðið og ákveðið söguþráð og senur. Skissið á söguborðið hvað á að gerast í hverri senu. Skrifið lauslega undir hverja teikningu þann texta sem á að tala inn á hverja senu. Notið að lágmarki sex senur. Finnið til hæfilega stóran pappakassa og útbúið í hann þrjá bakgrunna eða sviðsmyndir Umhverfið í Noregi (eða Bretlandseyjum). Umhverfið á leiðinni til Íslands. Umhverfið á Íslandi. Nota má teikningu, liti og ýmis efni til að klæða grunna og sviðsmyndir. Myndataka Gætið vel að sjónarhornum, birtu og hreyfingum. Takið myndir í allar senurnar og lagið til eftir þörfum. Spilið myndina, æfið leiklestur og leiklesið textann inn á myndina. Setjið inn forsíðu með því nafni sem þið hafið valið myndinni. Setjið inn í lok myndar lista með upplýsingum um höfunda og gerð myndarinnar. Á kreditlistanum eiga að vera nöfn allra í hópnum og helst upplýsingar um þátt hvers og eins í verkinu. Námsmat 20% - Var söguborð notað til gagns í undirbúningsvinnunni? 30% - Eru þrír vandaðir bakgrunnar notaðir í myndinni? 20% - Er hljóð á myndinni (vel lesinn eða leikinn texti)? 5% - Er góð forsíða með nafni myndar í byrjun myndarinnar? 5% - Er vandaður kreditlisti með nöfnum allra í hópnum í lok myndar? 20% - Var samvinnan í hópnum góð ? Hér að neðan má sjá stuttar kennslumyndir um forritið HUE sem hægt er að nota við hikmyndagerðina. Myndatökur með HUE - Að byrja að taka myndir Hljóðvinnsla með HUE - Að taka upp hljóð og vista
|